Í gær í skólanum fór tölvan mína að láta eitthvað illa, fór að
frjósa og ég gat ekkert gert, ég restartaði henni og restartaði
aftur þangað til ég var næstum búin að henda henni í gólfið af
frústreringu, þá ákvað ég að hringja nú niðrí Nýherja og spyrja
hvort ég gæti nú ekki komið með gripinn til þeirra svo hægt væri að
athuga hvað í ósköpunum gengi að henni. Stúlkan í afgreiðslunni
sagði að það tæki tæknimann 2-5 daga að FARA í tölvuna ekki laga
hana heldur að byrja á henni!!! svo ég náttúrulega fékk mér
hraðþjónustu þar sem tæknimaður fer í hana eftir 2 klukkutíma og
kostaði 6.000

svo fær tæknimaður tölvuna og segir mér
að þetta kosti um 24.000 að hreinsa vírusinn sem var í henni, en
betra væri að straua hana...já herrar mínir og konur 24.000!!! ég
er greinilega í vitlausum bransa, spurning að skella sér í
tölvunám?

en núna virkar greyið vel þar sem hann
herra Á. hjálpaði mér að setja upp vírusvarnarforrit og
spyware
Nú í kvöld er svo innflutningspartý hjá miss DP, ég auðvitað að
vinna þessa helgi en hvað um það, ég læt náttúrulega sjá mig hjá
drottningunni og fæ mér nokkrar gulrætur þar sem átak er í gangi

kannski bara eins gott að ég get ekki farið að drekka!!!
Until later darlings